Þessar kúlur eru alveg geggjaðar!
Eins og með margar uppskriftir hjá mér þá varð þessi uppskrift bara alveg óvart til.
Matargerð er svo mikið jóga hjá mér og ég veit fátt skemmtilegra en að dunda mér eitthvað í eldhúsinu – leika mér með hráefni og aðferðir. Oft verður til einhver snilld (og oft líka ekki) og eru þessar karamellukókoskúlur gott dæmi um eina matarsnilldina sem varð til í matarjóganu hjá mér 🙂
Karamellan:
- 1 krukka möndlusmjör (170 gr)
- ¼ – ½ bolli hlynsíróp (eða önnur sæta, t.d. hunang)
- 5 msk kakósmjör
- ½ lífræn vanilla (duft en ekki dropar)
- Smá sjávarsalt
Kúlurnar:
- 2 bollar kókosflögur (má vera meira eða minna)
Súkkulaðið:
- 1 plata dökkt súkkulaði (ég notaði 85%)
- 2 msk kókosolía
Aðferð:
- Bræðið möndlusmjörið, kakósmjörið og hlynsírópið í vatnsbaði ásamt vanillunni og sjávarsaltinu. Hrærið vel í á meðan.
- Setjið kókosflögurnar í stóra skál.
- Þegar möndlusmjörið hefur blandast vel saman við kakósmjörið og restina af hráefninu, hellið þá blöndunni yfir kókosflögurnar. Blandið vel saman með sleikju eða skeið (eða bara bæði).
- Þegar allt hefur blandast vel saman, mótið þá litlar kúlur með höndunum og setjið á bakka og svo inn í frysti.
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði ásamt kókosolíunni.
- Takið kúlurnar úr frysti og dýfið þeim ofan í súkkulaðið og setjið á smjörpappír. Ég dýfði bara helmingnum ofan í súkkulaðið en þið megið alveg dýfa allri kúlunni – þið ráðið alveg hvernig þið viljið hafa þetta.
- Setjið kúlurnar aftur inn í frysti.
- Eftir 20 mínútur eða svo ættu kúlurnar að vera orðnar tilbúnar.
ATH. #1 Það fer eftir smekk hversu sætar þið viljið hafa kúlurnar. Fyrir suma er alveg nóg að hafa ¼ bolla af einhverri sætu – fyrir aðra dugar ekkert minna en ½ bolli. Um að gera að smakka karamelluna til.
ATH. #2 Það er nær ómögulegt að mæla kakósmjörið nákvæmlega þar sem það er í föstu formi áður en það er brætt. En hafið ekki áhyggjur – það má vera meira eða minna af því en uppskriftin segir til um. Ágætt að hafa samt 5 msk til viðmiðunar.