Selfyssingar steinlágu þegar þeir mættu Víkingi Reykjavík í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld. Lokatölur voru 4-0.
Víkingar komust yfir eftir rúman hálftíma. Undir lok fyrri hálfleiks fékk Einar Ottó Antonsson sitt annað gula spjald og Selfyssingar léku því manni færri allan seinni hálfleikinn.
Víkingar áttu ekki í vandræðum gegn tíu Selfyssingum og gerðu þeir út um leikinn með þremur mörkum á tólf mínútna kafla.
Selfoss er í 5. sæti riðilsins með 3 stig en Víkingar í 2. sæti með 4 stig.