Kvennalið Selfoss tapaði með sex marka mun þegar liðið mætti Haukum á útivelli í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. Lokatölur urðu 25-19.
Haukar leiddu 14-11 í hálfleik og náðu síðan sex marka forskoti á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks. Selfyssingar náðu að minnka muninn aftur niður í þrjú mörk en Haukar juku forskotið aftur þegar leið á síðari hálfleikinn.
Kristrún Steinþórsdóttir, Auður Óskarsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir skoruðu allar 4 mörk fyrir Selfoss, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Heiða Björk Eiríksdóttir skoruðu 2 mörk og þær Elena Birgisdóttir, Margrét Katrín Jónsdóttir og Kara Rún Árnadóttir skoruðu allar 1 mark.