Sunnlendingar eiga góða fulltrúa á Ólympíuleikunum sem staðið hafa yfir undanfarna daga og lýkur í Ríó de Janeiro í Brasilíu annað kvöld.
Selfyssingar eiga þrjá fulltrúa í Ríó. Það eru þeir Magnús Tryggvason, flokkstjóri íslenska sundliðssins, Vésteinn Hafsteinsson, sem þjálfar sænska kringlukastarann Daniel Ståhl og Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta.
Pétur Guðmundsson, frá Tungu í Gaulverjabæjarhreppi, er þjálfari Guðna Vals Guðnasonar kringlukastara og flokkstjóri frjálsíþróttahópsins og þá er Örvar Ólafsson frá Stóru-Hildisey, aðstoðarfararstjóri, íslenska hópsins en hann starfar sem verkefnastjóri hjá Íþrótta- og Ólympíusambandinu.
Íslenskir þátttakendur á Ólympíuleikunum hafa allir lokið keppni en Þórir Hergeirsson stýrir sínu liði í leik um bronsið gegn Hollendingum síðdegis í dag.