Selfyssingar féllu úr leik í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta í kvöld eftir hetjulega baráttu í leik tvö gegn Aftureldingu. Gestirnir sigruðu 31-33 eftir framlengingu í Vallaskóla og einvígið 2-0.
„Þetta er gífurlega svekkjandi. Við spiluðum frábærlega í kvöld. Í rauninni fannst mér við spila nógu vel til þess að vinna leikinn en því miður tókst það ekki,“ sagði Stefán Árnason, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik. „Við erum að spila við liðið sem komst í oddaleik á Íslandsmótinu í fyrra og erum drullusvekktir að vinna þá ekki.“
Selfyssingar voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu 12-10 í leikhléi. Seinni hálfleikurinn var æsispennandi, Afturelding komst tvisvar einu marki yfir, en annars höfðu Selfyssingar frumkvæðið. Síðustu sóknir Selfoss í venjulegum leiktíma voru ekki nógu góðar. Liðið tapaði boltanum í tvígang og Afturelding náði að jafna metin, 27-27, þegar tvær sekúndur voru eftir af leiknum.
Það var stál í stál í framlengingunni en Mosfellingar fóru betur með færin í síðustu sóknum leiksins og tryggðu sér tveggja marka sigur.
Einar Sverrisson var markahæstur Selfyssinga með 9 mörk, Teitur Örn Einarsson skoraði 8/5, Elvar Örn Jónsson 7, Hergeir Grímsson 5 og Guðjón Ágústson 2. Einar Vilmundarson varði 18/1 skot í marki Selfoss.