Ég hef oft velt þessari spurningu fyrir mér þegar kemur að málefnum sorpflokkunar hér á okkar fámenna landi. Af hverju er það svona flókið að skila af sér rusli?
Íslendingar eru með svo margar mismunandi útgáfur af flokkunarkerfum að fólk fær bara létt taugaáfall við að hugsa út í þessi mál.
Segjum sem svo að ég leggi af stað í ferðalag. Ég byrja í Hafnarfirði þar sem allur pappi er flokkaður og settur í blátunnu, plast er sett í sér poka og sett í grátunnu. Ég fer áfram yfir í Kópavog. Þar er líka blátunna en núna á plastið að fara í hana en ekki þá gráu. Okei, ég hlýt að geta munað þetta!
Svo bruna ég áfram af stað og er kominn til Reykjavíkur. Þar á plastið að fara í græntunnu, pappinn í blátunnu og svo eru þeir líka með hina gömlu grátunnu. Nei, núna er ég orðin ruglaður og klóra mér í skallanum. Átti plastið að fara í grátunnuna, blátunnuna eða var það græntunnan. Úff, hvað er að frétta?
Ég ákveð að pæla ekki í þessu og held áfram á mínu ferðalagi. Ég ætla að skella mér í sumarbústað í Hrunamannahrepp. Þegar þangað er komið ætla ég að létta á sorpinu sem safnaðist upp hjá mér. Þar er blátunna, grátunna og brúntunna. Hvað á ég að gera? Ég les á bláu tunnuna og þar er komin enn önnur útgáfa. Þar á ég að setja plast, pappa og járn allt saman. Svo má lífræna ekki lengur fara með gráutunnunni heldur á að fara í brúnutunnuna. Ég skoða þetta seinna og tek ruslið mitt og fer yfir í Bláskógabyggð til að fá mér ís. Þar sé ég fjórar tunnur: gráa, brúna, græna og bláa. Nei, hættu nú alveg! Ef ég væri ekki búinn að missa allt hárið þá væri ég alveg að verða gráhærður.
Ég gefst upp, ég veit ekki hvernig ég á að gera þetta. Ég bruna á Selfoss stoppa fyrir utan eina sjoppu og sé þar stóran gám sem á stendur heimilissorp. Þar hendi öllu sorpinu og bruna svo aftur beinustu leið í Hafnarfjörð þar sem ég stekk inn og loka mig af með gríðarlegt flokkunarsamviskubit.
Þarf þetta að vera svona flókið? Er ekki hægt að einfalda þetta í ekki stærra landi en raun ber vitni? Er það virkilega nánast svo að ef ég ferðast á milli einhverja af þessum 72 sveitarfélaga sem eru hér á landi þarf ég að læra að flokka upp á nýtt?
Ég tel að það væri sniðugra að það væri eitt samræmt flokkunarkerfi fyrir landið sem tryggir það að allir séu á sömu línu. Það myndi leiða til þess að betri og skilvirkari flokkun ætti sér stað og endurvinnsluefni færu á rétta staði.
Samband ungra Framsóknarmanna samþykkti ályktun um málið á síðasta sambandsþingi sínu þar sem lagt var til að komið verði á samræmdu flokkunarkerfi fyrir landið og mun berjast fyrir því að ná málinu í gegn.
Daði Geir Samúelsson,
formaður umhverfisnefndar Hrunamannahrepps og stjórnarmeðlimur í Sambandi ungra framsóknarmanna.