Píratar tala fyrir kerfisbreytingum í þágu samfélagsins. Vandamál nútímans eru oftast kerfisbundin og til þess að fá öðruvísi niðurstöður er þörf á öðruvísi nálgun.
Ein af þeim grundvallarbreytingum sem þarf að eiga sér stað eru markviss skref í átt að sjálfbæru samfélagi í velsældarhagkerfi, sem getur leitt fram lausnir sem liggja þvert á ólíka geira samfélagsins. Ólíkt núverandi kerfi eru markmið velsældarhagkerfisins ekki að hámarka hagvöxt, gróða og arð fjármagnseigenda – heldur að að tryggja velsæld okkar allra sem búum í landinu, sem og náttúrunnar okkar.
Velsældarhagkerfi hugsað til styðja við sjálfbæra þróun. Því þarf kerfishugsun og samtvinnun þekkingar sem tengist náttúrunni og umhverfinu, hagkerfi, viðskiptum og fjármálum, og samfélagslegum þáttum, þar með talin þekkingu bænda.
Landbúnaður í velsældarhagkerfi
Landbúnaður í heiminum öllum stendur frammi fyrir umbyltingu vegna framfara í ræktun, hnattrænna loftslagsbreytinga, og vegna breyttra neysluvenja almennings í tengslum við græn umskipti samfélagsins.
Í slíkum breytingum felast bæði tækifæri og áskoranir og við Píratar erum óhræddir við að taka ný skref inn í framtíðina. Við viljum efla þekkingu á fjölbreyttum landbúnaði og við leggjum áherslu á stuðning við nýsköpun sem getur nýst í landbúnaði, t.d. í garðrækt, ylrækt, jarðrækt, og við lífræna framleiðslu.
Einnig þarf að styðja mun betur við hefðbundinn landbúnað, en bændur hafa lengi talað um léleg kjör, og hvernig búvörusamningar þarfnist breytinga til að bregðast við breyttum aðstæðum.
Neyðarákall ungra bænda
Samtök ungra bænda sendu til að mynda út neyðarkall á síðast liðnu ári, þar sem þeir sögðu stjórnvöld þurfa að bregðast strax við, enda sé brottfall úr stéttinni alltof hátt, og fjöldagjaldþrot blasi við ef stjórnvöld grípi ekki inn í vandann án tafar.
Við Píratar tökum því ákalli alvarlega. Við viljum tryggja framtíð og afkomu bændastéttarinnar með bættum lánakjörum, styrkjum til framkvæmda, niðurgreiðslu á flutningi og dreifingu raforkuku til nýsköpunar, og skilyrðislausri grunnframfærslu fyrir alla bændur. Við viljum styrkja bændur en ekki milliliði.
Við getum rekið loftslagsvænasta landbúnað í heimi.
Síðustu misseri hafa Bændasamtökin unnið að svokölluðum Loftslagsvísi bænda, sem eiga að hjálpa bændastéttinni að móta metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum.
Slíkum áformum fögnum við hjá Pírötum, enda setjum við umhverfis- og loftslagsmálin á oddinn. Við erum stolt af því að hafa fengið viðurkenningu fyrir metnaðarfyllstu stefnuna í þeim málaflokki í úttekt Sólarinnar, sem er mat á stefnum allra stjórnmálaflokka sem lúta að loftlagsmálum, náttúruvernd og hringrásársamfélags á vegum Ungra umhverfissinna bæði fyrir þessar kosningar og þá síðustu.
Bændur eru sú stétt sem finnur einna mest fyrir loftslagsbreytingum, enda vinna þeir náið með náttúrunni allt árið um kring. Það er því mikilvægt að landbúnaður sé sjálfbær og loftslagsvænn og að framtíð landbúnaðar og komandi kynslóða sé tryggð.
Við Píratar erum fullviss um, líkt og Bændasamtökin, að við getum rekið loftslagsvænasta landbúnað í heimi.
Tryggjum framtíð og velferð bænda – og þar með okkar allra
Í nýlegri heimsókn Uglu Stefaníu og Kristínar Völu til Bændasamtaka Íslands fórum við yfir helstu áherslumál þeirra á næstu árum, en nýir búvörusamningar eru á dagskrá næstu ríkisstjórnar og eiga að koma fram árið 2026.
Það er góður samhljómur í áherslum Bændasamtakanna og stefnum Pírata í landbúnaðarmálum.
Til dæmis var nefnt að það væri undirstöðuatriði að tryggja afkomu og öryggi bænda, meðal annars með styrkingu stoðkerfa, betri tryggingavernd til að draga úr fjárhagslegri áhættu og óvissu, og að nútímavæða regluverk og kerfi.
Þá þarf sömuleiðis að styðja við framleiðslu hérlendis með viðeigandi tollvernd þar sem það sama gengur yfir innlendar sem og innfluttar matvörur, og að merkingar, gæðastimplar, og vottanir um dýravelferð séu áreiðanlegar og í samræmi við þá staðla sem við setjum.
Þetta samræmist áformum okkar Pírata að bændur og fólk sem stundar landbúnað geti fengið grunnframfærslu til að sinna sínum landbúnaði af ástríðu, í stað þess að ánægja þess að starfa í honum sé gleypt af áhyggjum er varðar fjárhagslegt óöryggi og lélegum kjörum.
Það hefur aldrei verið mikilvægara að tryggja að landið haldist í byggð og að jarðir séu áfram notaðar í landbúnað, í stað þess að falla í eyði og verða erlendum fjárfestum að bráð.
Andleg og líkamleg velferð bænda og dýra
Velferð dýra er velferð bænda, og við Píratar leggjum áherslu á að velferð dýra sé í fyrirrúmi. Við þurfum að tryggja að dýr búi ekki við óviðunandi aðstæður, fái tækifæri til að njóta lífsins og að slátrun þeirra sé eins sársaukalaus og skjót og auðið er. Til þess þarf að leggjast yfir alla þætti dýrahalds og gera breytingar sem tryggja velferð dýra.
Samhliða því þarf svo að tryggja andlega og líkamlega velferð bænda, stuðla að nýliðun og skapa umhverfi og hvata þar sem fólk sér kost á því að starfa í landbúnaði í stað þess að upplifa óöryggi, ótta og vanmátt. Okkur á öllum að líða vel, hvort sem við erum mannfólk eða önnur dýr.
Sjálfbærni leiðin að fæðuöryggi í framtíðinni
Matur er menning. Bændur spila lykilhlutverk í því að stuðla að fæðuöryggi, og hefur þörfin fyrir sjálfbæra matvælaframleiðslu sjaldan verið jafn mikilvæg. Með því að styðja betur við sjálfbærar aðferðir og nýsköpun í innlendri framleiðslu drögum við úr þörfinni að reiða okkur eins mikið á innfluttar vörur og nú, og stuðlum að því að íslenskur landbúnaður geti blómstrað og að fleiri sjái kosti þess að stunda landbúnað. Píratar leggja áherslu á að styðja við menningararf landsins, og rætur hans eru í bændasamfélaginu.
Bændur í velsældarhagkerfi framtíðar
Ímyndum okkur að við eigum okkur öll velsældar draum fyrir landið okkar. Ef stefnan er tekin upp 2025 lítum þá til tveggja kjörtímabila – og sjáum fyrir okkur að eftirfarandi hlutir verði orðnir að veruleika árið 2033:
Nr. 1. Bændur fá beina afkomustyrki og geta því haft meiri tíma til að hugsa um land og dýr – sem er það sem gleður hjarta þeirra. Stór hluti bænda hefur tekið upp umhverfisvænan landbúnað eins og t.d. auðgandi landbúnað (e. regenerative agriculture) þar sem beit dýra er stýrt yfir túnin og innkaup á tilbúnum áburði hafa stórminnkað. Það sparar gjaldeyristekjur, bindur kolefni í jarðvegi, eykur líffræðilega fjölbreytni, eykur velferð dýra og minnkar kostnað fyrir bændur.
Nr. 2. Tryggingavernd, lánakjör, tollvernd og hvatar og styrkir í innlendri nýsköpun hafa verið bætt sem um munar, og bændur búa því við mun meira fjárhagslegt öryggi, betri lánakjör til framkvæmda, niðurgreiðslu á rafmagni og að innflutt matvæli þurfi að fylgja sömu stöðlum og innlend framleiðsla. Það mun leiða okkur nær sjálfbærni og fæðuöryggis.
Nr. 3. Bændur eru nú farnir að fá greiðslur í gegn um kolefnisbókhald sem tengist landnýtingu. Dýravelferð hefur batnað því ekki bara nautgripir, kindur og hestar eru í stýrðri beit, heldur eru svín og hænur líka á landinu. Verksmiðjubúskapur með dýr hefur stórminnkað og merkja má stóran hluta kjötafurða sem “lausagöngu”, “auðgandi” og/eða “lífrænt”.
Nr. 4. Farið hefur verið í stórátak í náttúruvernd. Skógar hafa aukist á landinu – því skógrækt hefur verið stunduð á örfoka landi og söndum, aðallega af bændum. Votlendi hefur verið endurheimt út um allt land. Vel gróið mólendi hefur verið varðveitt fyrir fuglana okkar. Líffræðilegur fjölbreytileiki hefur stóraukist á landi og í sjó.
Áherslur Pírata fyrir landbúnað komu fram á fundi Samtaka ungra bænda á Hvanneyri þann 20. nóvember sem unnt er að sjá í streymi.
…og nefna má svo margt, margt fleira. Það er hægt að gera hlutina aðeins öðruvísi. Með öðruvísi nálgun, þá fáum við vitanlega öðruvísi niðurstöðu.
Við bjóðum bændum að vera með okkur í því að byggja upp velsældarhagkerfið í þágu manna og náttúru.
Álfheiður Eymarsdóttir,
bæjarfulltrúi í Árborg, skipar 2. sæti Pírata í Suðurkjördæmi
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir,
sveitastelpa af blönduðu búi úr Austur-Húnavatnssýslu og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi
Kristín Vala Ragnarsdóttir,
prófessor emerita, sjálfbærnifræðingur, meðstofnandi og sendiherra Bandalags velsældarhagkerfa, í 5. sæti Pírata í Reykjavík norður