Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir því að taka stórar ákvarðanir á næstunni sem geta mótað efnahagslega framtíð landsins um ókomna tíð. Hugmyndir um að ráðast í stóraukna húsnæðisuppbyggingu, virkjanaframkvæmdir og jafnvel lækkun skatta, ásamt því að útdeila eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka samtímis til almennings, vekja skiljanlenlega áhuga kjósenda nú rétt fyrir Alþingiskosningar.
Hvað þýða þessar hugmyndir í samhengi við stöðu ríkisfjármála og íslenskan vinnumarkað?
Ríkissjóður Íslands hefur verið að jafna sig smátt og smátt eftir áskoranir undanfarinna ára, þar á meðal heimsfaraldur og aukinn hallarekstur því samhliða. Þó að halli ríkissjóðs hafi minnkað á síðasta ári, er skuldastaða hans ennþá mikil áskorun að vinna á.
Aukin húsnæðisuppbygging og virkjanaframkvæmdir eru þó mikilvæg skref fyrir langtíma hagvöxt. Aukið framboð á húsnæði gæti dregið úr þrýstingi á fasteignamarkaði og fjárfestingar í orkuinnviðum gætu skapað ný tækifæri fyrir ýmsar atvinnugreinar. Hins vegar er ljóst að slík áform krefjast mikils vinnuafls, sem íslenskur vinnumarkaður á erfitt með að mæta. Á meðan atvinnuleysi er í lágmarki eins og staðan er nú á vinnumarkaði er óhjákvæmilegt að flytja inn erlenda starfsmenn.
Ef skattalækkanir eru framkvæmdar, samhliða stórfelldum fjárfestingum í húsnæði og virkjunum, skapar það aukna fjárhagslega byrði fyrir ríkissjóð. Minnkandi tekjur ríkissjóðs og aukin útgjöld leiða til þess að ríkið þyrfti annað hvort að skera óhóflega niður í sínum rekstri eða auka lántökur, sem hækka þá aftur skuldir ríkisins og vaxtakostnað.
Að útdeila hlutabréfum í Íslandsbanka með þjóðinni hefur verið kynnt sem hugmynd sem eykur jöfnuð og þátttöku almennings í eignarhaldi. Þó að þetta hljómi vel í eyrum kjósenda, þá myndi slíkt skerða framtíðararðgreiðslur til ríkissjóðs og mögulega veikja stöðu bankans á markaði. Þessa eign ætti frekar að nýta til að fjármagna framkvæmdir eða styrkja innviði í samfélaginu.
Hvað ber að gera?
Mikilvægt er að forgangsraða verkefnum ríkisins með skýrri stefnu og varkárni. Að fara í framkvæmdir án þess að skapa of mikla þenslu og tryggja sjálfbærni ríkisfjármála er lykilatriði. Fjárfestingar í húsnæði og orkuinnviðum eru nauðsynlegar, en þær ættu að fara fram í samræmi við skýra áætlun um fjármögnun og mannafla. Þjóðhagslegur stöðugleiki og ábyrg hagstjórn verða að vera leiðarljósið. Það er verkefni okkar allra að leggja grunn að sjálfbæru hagkerfi sem þjónar bæði nútíð og framtíð.
Það liggur í augum uppi að ekki er mögulegt að fara samtímis í að virkja meira, byggja meira, lækka skatta og útdeila eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka til almennings nema að það fari illa fyrir íslensku þjóðarbúi. Að halda öðru fram er rökvilla!
Tómas Ellert Tómasson
Byggingarverkfræðingur og stuðningsmaður Framsóknar