Á Íslandi eru tæplega fimm þúsund sjómenn, einhverjir eru í styttri túrum en aðrir hafast við í löngum útiverum á sjó, allt upp í 40 daga.
Á sama tíma er kosið til stjórnlagaþings og er utankjörfundaratkvæðagreiðsla aðeins opin í 16 daga. Það gefur því auga leið að margir sjómenn hafa verið útilokaðir frá lýðræðislegri þátttöku í íslensku samfélagi.
Þetta er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að á komandi stjórnlagaþingi verður fjallað um auðlindir Íslands, sameign á þeim og nýtingarrétt. Þar með talið fiskinn, grunnstoð atvinnu sjómanna.
Ég er einn þeirra sem er í framboði til stjórnlagaþings. Þá er ég jafnframt einn af þeim sem hefur verið sviptur kosningarétti, þar sem ég verð á sjó á kjördag. Veiðiferðin hófst 29. október eða tólf dögum áður en kosningar hófust og veiðiferðinni líkur ekki fyrr en 28.
nóvember, eða daginn eftir kosningar. Því hef ég ekki einu sinni kost á því að kjósa sjálfan mig í komandi kosningum.
Það hafa margir sjómenn sett sig í samband við mig og lýst yfir stuðningi við framboð mitt án þess þó að geta kosið mig. Því er ljóst að ég mun tapa mörgum atkvæðum, eingöngu fyrir vanhugsaða framkvæmd kosninganna.
Allt tal um að jafnt vægi atkvæða verður hálf kjánalegt þegar horft er til þess að ekki sé tryggt að allir landsmenn geti mætt á kjörstað.
Það er óviðunandi að vera útskúfaður frá lýðræðislegri þátttöku sökum vinnu sinnar.
Nái ég kjöri til stjórnlagaþings mun ég beita mér fyrir því að allir hafa jafnan rétt til kosninga, óháð búsetu, starfi eða fötlun.
Eyþór Jóvinsson – 3029
Á Vestfjarðamiðum
www.jovinsson.is