Hjalti Þór: Styðjum Árna Rúnar

Síðustu sex ár hef ég starfað sem bæjarstjóri Hornafjarðar. Á þeim tíma hef ég unnið náið með Árna Rúnari Þorvaldssyni, sem sækist eftir 2-4. sæti í forvali Samfylkingar nú um helgina.

Í stuttu máli sagt fyndist mér Árni vel að þeim sætum kominn. Sem forseti bæjarstjórnar, formaður bæjarráðs og í öðrum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið hafa kostir Árna nýst vel. Hann hefur ríka réttlætiskennd og er baráttumaður fyrir sínum málstað.

Á vettvangi sveitarfélagsins hefur hann beitt sér fyrir bættum hag fjölskyldna, sanngjarnri málsmeðferð og góðri stjórnsýslu svo dæmi séu tekin.

Á þeim árum sem ég hef starfað sem bæjarstjóri hefur ríkt góður andi í bæjarstjórn. Það er regla að leitað sé sátta um málefni. Slík vinnubrögð stjórnmálaafla eru til fyrirmyndar að mínu mati og ættu líka að tíðkast á Alþingi Íslendinga. Hljóti Árni brautargengi í flokksvalinu er ég þess fullviss að hann muni starfa áfram í þessum anda.

kveðjur,
Hjalti Þór Vignisson

Fyrri greinFlottur sigur Þórsara á KR
Næsta greinVatnsflóð í Sunnulækjarskóla