Það skiptir ekki máli hvort það er SÁÁ, Sjúkrahúsið Vogur, fólk með alkóhólisma eða aðra geðsjúkdóma. Það skiptir ekki máli hvort það er fátækt fólk, láglaunafólk eða hinn stóri galli á heilbrigðiskerfinu okkar og bankakerfinu.
Það skiptir ekki máli hvort það eru öryrkjar, eldri borgarar eða útigangsfólk. Eða vextirnir sem eru að sprengja þakið á húsinu okkar og henda okkur á götuna.
Það skiptir ekki máli hvort það sé leigan þín á húsnæðinu þínu sem enginn Íslendingur getur borgað nema að vera frændi eða frænka Bjarna Ben eða tengjast Sjálfstæðisflokknum á einhvern hátt og ríka fólkinu.
Inga Sæland formaður „Flokks fólksins“ berst fyrir þessu öllu. Fyrir „okkur“, „mig og þig“! Og hún gerir það af svo mikilli réttlætiskennd, krafti, ástríðu og heiðarleika sem er svo sjaldgæfur í íslenskum stjórnmálum og þess vegna kýs ég Flokk fólksins. Og með því að gera það þá er aðeins meiri möguleiki á bjartari framtíð fyrir flesta Íslendinga. Fyrir mig og þig. Ekki bara ríka fólkið eða þá sem tengjast þeim. Þá er aðeins meiri möguleiki á að þjáning endi.
Ég var að horfa á ræðu sem Inga Sæland gaf á málþingi SÁÁ á þessum fréttamiðli.
Nú spyr ég þig: Hvort viltu flokk sem hugsar bara um sjálfan sig eða flokk sem hugsar um ÞIG og alla aðra í landinu. Hugsaðu um það áður en þú setur X við einhvern flokk 30. nóvember.
Ég hef aldrei séð eins magnaða stjórnmálakonu og Ingu Sæland. Aldrei… og ég er svo þakklátur fyrir hana og alla aðra í flokknum.
Takk Flokkur fólksins.
Gísli Hvanndal Jakobsson,
eilífðarstúdent