Lyftistöng fyrir samfélagið

Bragi Bjarnason. Ljósmynd/Aðsend

Það er ekki á hverjum degi sem tvö stór framkvæmdaverkefni eru kynnt á svæðinu okkar á sama deginum. Hvað þá í sama sveitarfélaginu, en sá dagur var 20.nóvember þegar tekin var skóflustunga og framkvæmdaverkefni kynnt fyrir yfir 30 milljarða á næstu fjórum árum í Árborg.

Nýtt öryggisfangelsi á Eyrarbakka
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra kynnti áætlanir um uppbyggingu nýs öryggisfangelsins í landi Stóra Hrauns við Eyrarbakka. Nýja fangelsið á að geta tekið við um 128 föngum þegar það er fullbyggt, með möguleika á stækkun til framtíðar. Í dag geta verið allt að 80 fangar á Litla Hrauni í húsnæði sem komið er í viðhaldsþörf.

Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra kynnir uppbyggingu nýs fangelsis í Rauða
húsinu á Eyrarbakka.

Áætlað er að byggja fangelsið upp á næstu fjórum árum og taka það í notkun á árinu 2028. Vonandi ganga þau áform eftir enda um stóra fjárfestingu að ræða fyrir samfélagið okkar. Fram kom á kynningunni að um væri að ræða nútíma öryggisfangelsi sem yrði byggt upp að norrænni fyrirmynd með áherslu á endurhæfingu og öryggi fanga og starfsfólks.

Selfossbrú mun rísa
Það létti hjá mörgum þegar undirritun fór fram um byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá í golfskálanum á Selfossi. Verkefni sem hefur tafist óþarflega mikið en fögnum því að loksins sé komið að framkvæmdum. Strax í framhaldinu tók Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og innviðaráðherra fyrstu skóflustunguna að brúnni sem áætlað er að verði tilbúin árið 2028. Brúin verður byggð af ÞG verktökum og hefur verið nefnd “Selfossbrúin” af heimafólki. Finnst það nafn falla vel að verkefninu sem felur bæði í sér uppbyggingu brúarinnar og tengivega báðu megin árinnar.

Selfossbrú séð frá núverandi Ölfusárbrú. Ljósmynd/Örn Óskarsson

Selfossbrúin verður mikil samgöngubót við Selfoss þar sem ófáir kannast við langar raðir eftir Suðurlandsvegi í dag til að komast yfir núverandi brú í austur eða vesturátt. Íbúar og gestir sem vilja nýta þá fjölbreyttu þjónustu sem er á svæðinu, geta þá vonandi átt greiðari leið um gömlu brúnna.

Þessi verkefni ásamt fleirum á Suðurlandi eru mikil lyftistöng fyrir samfélagið og sýna þá miklu uppbyggingu sem er í gangi á svæðinu. Hvort sem um er að ræða samgöngur, orkumál, íbúðauppbyggingu eða aðra atvinnustarfsemi þá er hugur í Sunnlendingum að halda áfram og efla svæðið enn frekar.

Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg

Fyrri greinÁrmenningar áræðnari í lokin