Undanfarnir tveir mánuðir hafaverið mjög viðburðarríkir í bæjarstjórn Árborgar. Mikið hefur verið rætt um skipti á bæjarstjóra. Kosti, galla, framkvæmd og klofning. Erfitt er fyrir undirritaðan bæjarfulltrúa að úttala sig um sýn sína á stólaskiptum. Sér í lagi þegar deilur einskorðast við eitt framboð og eftirlæt ég því gerendum í því máli að skýra frá framvindunni.
Girðingin og samráðsleysi
Önnur mál hafa borið á góma og þá má nefna framgöngu meirihluta Sjálfstæðismanna og Á-lista við girðingu í Sigtúnsgarði. Undirritaður nýtti allan lýðræðislegan rétt sem bæjarfulltrúi til að vísa málinu til bæjarstjórnar og þaðan í frekara samráð í skipulagsnefnd. Frekari samvinna er ekki í boði og því er ágætt að sjá það sjónarmið koma fram. Samráð skal haft við hentugleika. Vandamálið við samráð og samvinnu er að það gengur í báðar áttir og nýr meirihluti slær hér nýjan tón. Fyrstu árin tvö með samvinnu og samráð en tvö hin síðari er það ekki í boði.
Eigna og veitunefnd
Í síðustu viku var fundur í eigna- og veitunefnd þar sem uppgjör á Selfosshöll var lagt fram. Fyrr hafði meirihluti bókað að þau hefðu reiknað sig niður á nýja niðurstöðu um að kostnaðurinn hefði verið 1.857 ma.kr. Hið rétta kom svo fram en raunin var 1.348 ma.kr. Hér var haldið fram rangri upphæð með það að markmiði að láta fyrri meirihluta líta illa út fyrir einhverra hluta sakir. Óskiljanleg er framganga meirihluta sjálfstæðismanna og enn verra er hversu illa þetta kom við starfsmenn sveitarfélagsins. Minnihluti hvatti meirihluta til að láta af þessu en áfram var haldið. Raunin varð að leiðréttingar voru lagðar fram í fjórum liðum sem koma fram í bókun sem undirritaður birtir jafnframt hér fyrir neðan. Til gamans, þá er þetta ekki í fyrsta skipti sem hefðbundnar reglur stærðfræðinnar vefjast fyrir meirihluta sjálfstæðismanna…
Á listi gengst í ábyrgð
Steininn tók úr í framgangi núverandi meirihluta Á-lista og sjálfstæðismanna á síðasta fundi eigna-og veitunefndar. Nýr bæjarfulltrúi í meirihluta sá ekki ástæðu til að leiðrétta bókun sjálfstæðismanna frá 16. apríl í nefndinni. Á tímapunkti bókunar (16.04.2024) var bæjarfulltrúi Á-lista í minnihluta og hafði ekkert með bókunina að gera. Að endingu var gengið svo langt að lýsa yfir eindregnum stuðningi við formann eigna- og veitunefndar sem nýverið varð uppvís af því að leggja fram rangar upplýsingar.
Betur hefði farið á með því að bæjarfulltrúi Á-lista hefði stigið til hliðar og lýst sig a.m.k. hlutlausan í málinu þar sem aðkoman að framsetningu og útreikningum var engin. Vegna aðkomuleysis Á-lista að málinu í upphafi hefði hlutleysi verið fullkomlega eðlileg viðbrögð. Einnig ber að nefna að bæjarfulltrúi Á-lista var aðili að meirihlutasamstarfinu sem ákvað byggingu Selfosshallar á kjörtímabilinu 2018-2022.
Eins öfugsnúið og málið kann að vera þá ætlar undirritaður að gera tilraun til að skýra málið. Meirihluti sjálfstæðismanna leggur fram ranga bókun um kostnað á Selfosshöll sem var bein ádeila á síðasta meirihluta í bæjarstjórn Árborgar sem Á-listi starfaði í á síðasta kjörtímabili. Á-listi sér ekki ástæðu til að bera til baka bókunina eða standa hlutlaus hjá. Heldur lýsir bæjarfulltrúi Á-lista yfir stuðningi við formann eigna- og veitunefndar sem veittist að fyrri meirihluta með rangindum. Núverandi bæjarfulltrúi Á-lista sem einnig sat sem varaformaður í eigna- og veitunefnd og var varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili, hefði mátt vita, hver raunverulegur kostnaður var við byggingu Selfosshallar. Bæjarfulltrúi Á-lista situr enn í eigna- og veitunefnd og er þátttakan í atburðarrásinni því fullkomlega óskiljanleg.
Er málið allt með slíkum ólíkindum að kalla þarf eftir útskýringum á hátterninu frá Á-lista fyrir íbúum sveitarfélagsins og einnig þarf að ítreka að meirihluti sjálfstæðismanna þarf að biðja starfsmenn og íbúa sveitarfélagsins afsökunar á rangfærslunum.
Samvinna í orði en ekki á borði
Að endingu, þá fer núverandi meirihluti mjög illa af stað. Komandi mánuðir í bæjarstjórn Árborgar verða erfiðir og þá sér í lagi vegna þess að samstarf og samvinna hafa verið lögð til hliðar og meirihlutaræði lagt á borð. Við munum að sjálfsögðu beita aðhaldi og upplýsa íbúa þegar tilefni er til og má gera ráð fyrir að ítrekaðar ástæður skapist í þeim efnum á komandi mánuðum.
Arnar Freyr Ólafsson,
bæjarfulltrúi Framsóknar
—