Það má að líkindum segja að það séu eðlilega skrítnar tilfinningar hjá bæjarfulltrúum að afloknum kosningum þegar verið er að mynda bæjarstjórn og standa í þeim sporum að fá tækifæri til að stýra sveitarfélaginu sem þú býrð í. Við í D-listanum í Árborg erum auðmjúk í þeirri aðstöðu ásamt öðrum bæjarfulltrúum, að stýra einu mest spennandi sveitarfélagi landsins, sem hefur mikla vaxtarmöguleika og ýmis tækifæri en er um leið í krefjandi rekstrarumhverfi. Það ríkir tilhlökkun nú þegar allt er komið af stað eftir sumarið að vinna með kraftmiklu starfsfólki sveitarfélagsins, íbúum og bæjarfulltrúum allra flokka að málefnum Sveitarfélagsins Árborgar.
Fyrstu mánuðirnir
Hugurinn ber okkur hálfa leið. Það er mikilvægt í upphafi ferðar að vita stefnuna og móta framtíðarsýn. Slíkt auðveldar ákvarðanatöku á öllum sviðum og leiðir okkur í sömu átt að markmiðinu og auknum árangri.
Bæjarfulltrúar og nefndarfólk hefur þessa fyrstu mánuði verið að koma sér inn í fjölbreytt verkefni sveitarfélagsins, fengið kynningu á starfsemi og nefndarstarfi og sett sig inn í mál sem beðið hafa afgreiðslu. Samstarf í nefndum og bæjarstjórn hefur að mínu mati verið mjög gott og vil ég þakka bæjarfulltrúum og nefndarmönnum fyrir góða nálgun á verkefnin. Má þar nefna staðfestingu á nýju aðalskipulagi, skipulagsbreytingar, útboð á öðrum áfanga Stekkjaskóla, framkvæmdaleyfi fyrir hreinsistöð á Selfossi ásamt öðrum verkefnum tengdum rekstri og þjónustu sveitarfélagsins. Fjöldi mikilvægra verkefna sem hafa verið lengi í undirbúningi og koma nú loks til framkvæmda.
Áfram gakk!
Það eru spennandi verkefni framundan sem munu gefa sveitarfélaginu færi á að bæta þjónustu og auka hagræðingu til framtíðar. Það er fyrirséð að uppbygging mun halda hér áfram og mikilvægt að innviðir fylgi í takt við áætlanir. Starfshópar um framtíðaruppbyggingu leikskóla hefur hafið störf og er honum m.a. ætlað að koma með tillögur um hvernig megi afleggja eldri bráðabirgðalausnir við leikskóla og forgangsraða uppbyggingu til framtíðar. Mun hópurinn skila tillögum til bæjarstjórnar strax í haust. Sömuleiðis er búið að skipa í starfshóp um uppbyggingu skólahúsnæðis á Eyrarbakka. Þá stendur til að hefja undirbúning að nýjum grunnskóla á Selfossi.
Orkuöflun er ein af undirstöðum áframhaldandi uppbyggingar. Það er forgangsmál bæjarstjórnar að afla réttinda til að leita og vinna heitt vatn á nýjum svæðum ásamt því að efla samstarf við önnur orkufyrirtæki. Nægt framboð er af heitu vatni sem stendur en þegar tekið er tillit til áætlaðrar uppbyggingar næstu ára verður að efla orkuöflun Selfossveitna til að tryggja áfram örugga afhendingu til allra neytenda í sveitarfélaginu.
Fjármálaáætlun til næstu 10 ára
Bæjarstjórn hefur fengið ráðgjafarfyrirtækið KPMG til samstarfs í þeim tilgangi bæta yfirsýn á fjárhag sveitarfélagsins svo hægt sé að marka skýra stefnu í fjármálum þess til lengri tíma. Í því skyni verður gerð fjármálaáætlun til næstu 10 ára þar sem markmiðið er að styrkja áætlunargerð og koma rekstri sveitarfélagsins í jafnvægi innan tilsetts tíma.
Með betri upplýsingum og skarpari sýn á fjárhaginn getur bæjarstjórn Árborgar við vinnu fjárhagsáætlunar hvers árs tekið ákvarðanir út frá bestu mögulegu upplýsingum hverju sinni. Áfram verður síðan vissulega að endurskoða fjármálaáætlun reglulega í takt við íbúaþróun, verðbólgu og aðra áhrifaþætti.
Ég tel mikilvægt að íbúar séu upplýstir um þau fjölbreyttu verkefni sem eru á döfinni innan sveitarfélagsins. Hérna fer ég yfir hluta þeirra verkefna sem eru í gangi en markmiðið er að bæjarfulltrúar upplýsa íbúa reglulega og þetta sé fyrsti pistill í þá átt.
Bragi Bjarnason
formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg