Að nýloknum sveitarstjónarkosningum hefur nýr meirihluti í Hveragerði fengið verðug verkefni til að leysa og vinna úr og hefur verið ánægjulegt að finna þeim farveg. Verkefnin hafa mörg hver verið áskorun en það er einmitt það sem við sem þarna sitjum buðum okkar krafta í, fengum umboð til og tökumst á við af miklum áhuga og vilja.
Eitt af þeim fjölmörgu verkefnum sem komið hafa inn á borð bæjarstjórnar er viljayfirlýsing Hveragerðisbæjar og Þróunarfélags NLFÍ slhf. Viljayfirlýsing þessi fjallar í megindráttum um að hefja viðræður með það að markmiði að ná samkomulagi um skipulagningu á svokölluðu Sólborgarsvæði sem liggur austan Varmár og að Þróunarfélagið fái heimild til uppbyggingar á landinu.
Áformuð uppbygging felur m.a. í sér íbúðabyggð, svæði fyrir 6 stjörnu hótel, heilsu- og vellíðunar dvalarstað, sem njóti sérhæfðrar ráðgjafar og faglegrar þjónustu frá Heilsustofnun, og fræðslusetur á sviði sjálfbærni og umhverfismála. Jafnframt verði fjallað um möguleika á stækkun og endurnýjun á húsnæði og aðstöðu Heilsustofnunar á núverandi svæði hennar í Hveragerði. Í viljayfirlýsingunni kemur einnig fram að farið verði yfir uppbyggingu nauðsynlegra innviða á svæðinu og greiðslur þar að lútandi. Mikil áhersla er á að hafa víðtækt samráð við íbúa sveitarfélagsins um þróun og uppbyggingu svæðisins. Viljayfirlýsingin gildir til næstu áramóta með möguleika á framlengingu um sex mánuði.
Það eru tækifæri í fyrirhugaðri uppbyggingu, m.a. á heilsu- og vellíðunar dvalarstað og íbúðabyggð, ásamt skólum og annarri þjónustu við íbúa með sjálfbærni að leiðarljósi, auk þess að styðja við starfsemi Heilsustofnunar og uppbyggingu á atvinnu í Hveragerði.
Hér höfum við í Hveragerði fengið tækifæri til að byggja upp samfélagið okkar enn frekar og er það vel þess virði að kanna málið til hlítar, hvort hér leynist ef til vill okkar eigin stórskipahöfn. Það er hlutverk okkar bæjarfulltrúanna að vera opin fyrir þeim tækifærum sem koma upp og geta eflt stoðir sveitarfélagsins, styrkt fjárhaginn og eflt atvinnulífið. Umfram allt er það mannauðurinn, íbúarnir og starfsfólkið sem er stórskipahöfnin okkar.
Fram undan er bæjarhátíð Hvergerðina, Blómstrandi dagar, en eins og gefur að skilja hefur sú hátíð ekki verið haldin hátíðleg síðustu tvö ár frekar en aðrir viðburðir. Það er því sérstök eftirvænting fyrir hátíðinni og munum við án efa gleðjast og njóta allra þeirra viðburða sem hátíðin hefur í för með sér. Um leið og ég óska okkur öllum í Hveragerði til hamingju með hátíðina fram undan þá bíð ég gesti einnig hjartanlega velkomna til að njóta með okkur.
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,
oddviti Framsóknar og forseti bæjarstjórnar í Hveragerði