Þátttöku- og íbúalýðræði

Við hjá Áfram Árborg leggjum mikla áherslu á íbúalýðræði, virkt samtal og samráð við alla íbúa sveitarfélagsins. Lýðræði snýst um svo miklu meira en að kjósa fulltrúa á 4ja ára fresti. Virkt þátttöku- og íbúalýðræði er stöðugt samtal við íbúa í gegnum íbúafundi, íbúakosningar og einkasamtöl.

Á listinn vill auka valddreifingu, við vitum að margir eru þeirrar skoðunar að framkvæmdir og fjármagn fari allt á Selfoss en aðrir verði útundan. Þannig á það ekki að vera.

Til að efla íbúalýðræði í Árborg leggjum við til að kosið verði með beinum og lýðræðislegum hætti í hverfaráð allra byggðakjarna og að þau fái skýrar  fjár- og valdheimildir. Þá getur nærsamfélagið ákveðið sjálft tekið hluta valdsins í sínar hendur, ákveðið að setja bekk hér, malbika þetta plan, fjárfesta í nýsköpun og skapandi greinum svo örfá dæmi séu tekin. Við viljum einnig auðvelda íbúum að krefjast íbúakosninga. Skv. sveitarstjórnarlögum þurfa 20% íbúa að krefjast íbúakosninga sem er ansi hár þröskuldur. Þar að auki er tekið fram í lögunum að niðurstöður þeirra séu aðeins ráðgefandi. Þá eru þetta ekki íbúakosningar heldur afar dýr skoðanakönnun.

Við viljum lækka þakið niður í 10% í Árborg og hafa niðurstöður bindandi með samþykki og staðfestingu bæjarstjórnar. Kjörnir fulltrúar eru að þjónusta  íbúa, ekki öfugt. Við styðjumst við þjónandi forystu. Íbúarnir eiga að ráða ferðinni. Kjörnir fulltrúar eru þjónar íbúa.

Áfram Árborg vill auðvelda íbúum að krefjast borgarafunda um ýmis málefni. Skv. sveitarstjórnarlögum er þakið þar einnig of hátt. Við viljum að haldinn sé borgarafundur ef 5% íbúa biður um fund. Það er og á að vera sjálfsagt mál að verða við þessum beiðnum íbúa. Við ætlum að auka aðgengi að kjörnum fulltrúum, bæjarstjóra og æðstu stjórnendum
sveitarfélagsins, með ákveðnum viðtalstímum, vefspjalli eða öðrum lausnum. Öllum fyrirspurnum skal svarað fljótt og vel og innan lögbundins stjórnsýslufrests.

En ef öll ráð hafa verið reynd til þrautar og hvorki fást svör né þjónusta þá viljum við setja á stofn umboðsmann íbúa sem aðstoði íbúa við við samskipti sín við, oft á tíðum flókið og ógagnsætt kerfi. Við þurfum að nútímavæða og þjónustuvæða sveitarfélagið enn frekar til einföldunar bæði íbúum sem og starfsfólki stofnanna sjálfra.

Forsenda þess að íbúalýðræði gangi upp er gagnsæi, vönduð vinnubrögð og fyrirmyndar upplýsingagjöf. Það er nauðsynlegt að íbúar eigi greiðan aðgang öllum upplýsingum með greiðum hætti, ekki að þræða fundargerðir nefnda og ráða sveitarfélagsins.

Settu X við Á til að styrkja sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Settu X við Á til að auka íbúalýðræði
Settu X við Á til að tryggja gagnsæi og vandaða upplýsingagjöf
Settu X við Á til að fá umboðsmann íbúa
Settu X við Á til að efla samráð við alla íbúa – ekkert um mig án mín

Framtíðin er núna!

Álfheiður Eymarsdóttir
Oddviti Á lista Áfram Árborgar

Fyrri greinVið viljum efla grunnstoðir sveitarfélagsins
Næsta greinSÁÁ Álfurinn leggur Suðurland undir sig