Átján tónleika sólógjörningur Jónasar

Vegna útkomu þriðju sólóplötu sinnar "Þar sem himinn ber við haf" efnir Jónas Sigurðsson til tónleikaraðar í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði Eystri dagana 7. – 28. júlí.

Jónas treður upp sex sinnum í viku í þrjár vikur og hefjast allir tónleikarnir klukkan 21:00. Frítt er inn á alla tónleikana nema þá síðustu.

Uppákomurnar verða því átján talsins þar sem Jónas kemur fram með tölvu og gítar en fær einnig til liðs við sig valinkunna tónlistarmenn eins og Ómar Guðjónsson, gítarleikara, Magna Ásgeirsson, söngvara og Svavar Pétur Eysteinsson, söngvara, svo nokkrir séu nefndir. Einnig mun tónlistarfólk af staðnum taka þátt í verkefninu.

Nýja platan sem Jónas vinnur að í samvinnu við Lúðrasveit Þorlákshafnar og tónlistarband eldri borgara í Ölfusi, Tóna og Trix, kemur út á haustmánuðum. Í tilefni af tónleikaröðinni í Fjarðarborg fer nú fyrsta smáskífa plötunnar, Þyrnigerðið, í loftið.

Hægt er að fylgjast með gjörningnum hér og einnig er öllum tónleikunum streymt beint á Netinu hér.

Fyrri greinÞrastarungar í fallhættu
Næsta greinSelfyssingar fá Brons