Hið árlega styrktarball knattspyrnudeildar Selfoss verður í Hvútahúsinu laugardagskvöldið 4. mars. Að venju verður mikið um dýrðir.
Fram koma m.a. Allt í einu, Sælan, DJ Búni, Þórir Geir úr Voice og rúsínan í pylsuendanum Léttsveit Gunnars Borgþórssonar ásamt hinu rómaða Boltabandi.
Miðasalan á ballið er hjá strákunum og stelpunum í meistaraflokki og 2. flokki karla og kvenna – og þau skora á þig að mæta!