Hljómsveitin Kiriyama Family hyggst gefa út sína aðra breiðskífu í haust og með hjálp aðdáanda sinna vonast sveitin eftir því að ná að safna fyrir útgáfunni á Karolina Fund.
Hljómsveitin hefur unnið sleitulaust að smíði annarar breiðskífu sinnar sem ber nafnið Waiting For…
Nú þegar hafa lögin Apart, Innocence og Chemestry fengið að hljóma í eyrum landsmanna við góðar undirtektir sem einmitt má finna á þessari plötu.
Guðmundur Geir Jónsson, gítarleikarinn góðkunni, útskýrir söfnunarferlið frekar í myndbandinu hér að neðan, en hljómsveitarmeðlimir lofa að nýja platan verði algjör bomba!
Smellið hér: Kiriyama Family á Karolina Fund