FAGURGERÐI – MATUR // Þessar brownies eru ekkert venjulegar brownies.
Fyrir utan það að vera alveg meiriháttar góðar þá er megin uppistaðan í þeim svartar baunir. Já, svartar baunir! Hverjum hefði dottið í hug að baunir gætu passað í brownies uppskrift?
Þessi uppskrift er súper einföld og tekur mjög stuttan tíma að gera.
Hráefni:
- Ein dós svartar baunir (400gr) (ég notaði frá Biona)
- 2 msk kakóduft
- 1/2 bolli haframjöl (ég notaði glútenlaust frá Amisa)
- 1/4 sjávarsalt
- 1/3 bolli kókossíróp
- 2 msk kókospálmasykur
- 1/4 bolli kókosolía, við stofuhita
- 1 (kúfuð) tsk lífræn vanilla (duft)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 súkkulaðiplata af dökku súkkulaði
Aðferð:
- Stillið bakaraofninn á 180° með blæstri.
- Hellið vökvanum af baununum og skolið vel (gott að nota sigti).
- Setjið baunirnar í blandara ásamt restinni af hráefninu og blandið vel saman á meðal hraða eða þar til deigið er orðið kekkjalaust og fínt. Það er líklegt að þið þurfið að stoppa blandarann nokkrum sinnum og ýta með sleikju innan á könnunni svo að deigið blandist örugglega allt vel saman.
- Hellið deiginu í skál.
- Saxið súkkulaðið niður og setjið í skálina með deiginu. Blandið saman með sleikju.
- Hellið deiginu í lítið eldfast mót og bakið í 15-20 mínútur (15 mínútur ætti að vera nóg).
- Takið úr ofninum og njótið hvers bita
johanna@sunnlenska.is