FAGURGERÐI – MATUR // Þessi hrákaka er alveg meiriháttar góð.
Átta mánaða gamall sonur minn elskar þessa köku. Tengdapabbi -sem er 75 ára – er líka mjög hrifinn af henni. Það má því segja að þessi kaka henti öllum aldurshópum.
Botn:
- 1 bolli valhnetur (lagðar í bleyti yfir nótt)
- 1 bolli kókosmjöl
- 1 bolli döðlur
- 3 msk hlynsíróp
- 2 msk kókosolía
- Smá sjávarsalt.
Aðferð:
- Hellið vatninu af valhnetunum og skolið hneturnar með volgu vatni.
- Setjið valhneturnar í blandara eða matvinnsluvél og kurlið niður.
- Setjið valhneturnar í skál og leggið til hliðar.
- Setjið kókosmjölið í skálina og hrærið saman við valhneturnar.
- Setjið döðlurnar í skál og hellið sjóðandi heitu vatni yfir. Látið liggja í að minnsta kosti 10 mín.
- Hellið vatninu af döðlunum og setjið í blandara eða matvinnsluvél ásamt hlynsírópinu, kókosolíunni og sjávarsaltinu. Blandið vel saman eða þar til döðlurnar eru orðnar að mauki.
- Setjið döðlumaukið í skálina með valhnetunum og kókosmjölinu. Blandið vel saman.
- Setjið deigið í hringlaga mót og þjappið vel niður með höndunum.
- Leggið til hliðar á meðan þið búið til fyllinguna.
Fylling:
- 1 og ½ bolli kasjúhnetur (lagðar í bleyti yfir nótt)
- ¼ bolli kókosolía, við stofuhita
- 1 bolli (tæplega) kókosmjólk
- ½ bolli hlynsíróp (meira eða minna eftir hversu sætt þið viljið hafa fyllinguna)
- 3 msk sítrónusafi úr ferskri sítrónu
- 2 tsk vanilla
- Smá sjávarsalt
- 1 bolli bláber (ef notuð eru frosin þá þurfa þau að þiðna fyrst)
+ bláber til að skreyta kökuna með
Aðferð:
- Hellið vatninu af kasjúhnetunum og skolið þær með volgu vatni.
- Setjið kasjúhneturnar í blandara ásamt restinni af hráefninu – fyrir utan bláberin.
- Blandið vel saman eða þar til blandan er orðin silkimjúk.
- Hellið helmingnum af blöndunni í skál og leggið til hliðar.
- Setjið nú bláberin í blandarann og blandið vel saman við hinn helminginn af fyllingunni.
- Hellið bláberjablöndunni yfir valhnetubotninn, dreifið vel úr með sleikju og setjið inn í frysti í sirka klukkutíma.
- Takið mótið úr frystinum og hellið restinni af fyllingunni yfir bláberjafyllinguna. Dreifið vel úr með sleikju.
- Skreytið með bláberjum. Athugið að þið þurfið að þrýsta bláberjunum lauslega niður í fyllinguna.
- Setjið kökuna inn í frysti.
- Geymið í frysti yfir nótt. Kakan þarf svo að fá að standa á borðinu í smá stund (alls ekki lengi) áður en hún er skorin.
Njótið!