Þessi uppskrift er mjög einföld í framkvæmd og þarf ekki ýkja mörg hráefni. Svo eru engar hnetur í henni svo að hún ætti að henta breiðum hópi fólks.
Þetta er heldur ekki stór uppskrift svo að fólk þarf ekki að fara á hausinn við að kaupa hráefnið í hana. Það er líka ótrúlega svekkjandi að vera búinn að gera stóra hrákökuuppskrift sem er maður er svo ekkert að fíla á endanum. En ég vona samt að þið fílið þessar raw bláberjamuffins – að minnsta kosti hafa allir sem hafa smakka þær verið mjög ánægðir með þær enda eru þær bæði hollar og góðar.
Botninn:
- 1 ½ bolli kókosflögur
- 1 bolli döðlur
- 2 msk kókosolía, við stofuhita
- 3 msk hlynsíróp
- Smá sjávarsalt
Aðferð:
- Öllu skellt í matvinnsluvélina og blandað þar til allt loðir vel saman.
- Notið matskeið til að skammta deiginu í sílíkonmuffinsform. Þrýstið vel niður með skeiðinni. Deigið ætti að passa fyrir sirka sjö muffinskökur.
- Leggið til hliðar á meðan þið gerið kremið.
Kremið:
- 1 bolli döðlur
- ½ bolli frosin bláber (sem hafa fengið að þiðna að mestu)
- ½ bolli kókosmjólk (full fat)
- ½ tsk lífrænir vanilludropar
- 1 msk hlynsíróp
Aðferð:
- Setjið döðlurnar í skál og hellið sjóðandi heitu vatni yfir. Látið liggja í vatninu í klukkutíma eða svo. Þetta er gert til að döðlurnar verði mýkri og auðveldara sé að mauka þær.
- Setjið döðlurnar ásamt restina af hráefninu í blandara og blandið þar til allt er orðið silkimjúkt og laust við alla kekkji. Athugið að það er líka hægt að nota töfrasprota til að mauka kremið.
- Notið matskeið til að skammta kreminu ofan á botnana. Sléttið vel úr í leiðinni
- Skreytið með muldum kókosflögum.
Athugið að þetta er frekar lítil uppskrift. Um að gera að tvöfalda hana (eða jafnvel þrefalda) ef þið viljið metta fleiri munna.