FAGURGERÐI – MATUR // Þessi hrákaka er alveg klikkaðslega góð!
Kakan er innblásin af hráköku sem ég smakkaði hjá snillingnum henni Dagnýju í Hendur í höfn í Þorlákshöfn. Botninn í þeirri köku var með gráfíkjum en áður en ég smakkaði þá köku hafði mér aldrei dottið í hug að gráfíkjur væri svona góðar. Sú kaka var líka með kasjúhnetufyllingu og með mjúkri karamellu ofan á.
Þessi kaka er samt í raun ekkert eins og sú kaka, en kakan hennar Dagnýjar gaf mér hugmynd að samsetningunni að þessari. Ég mæli eindregið með því að þið takið bíltúr niður í Þorkákshöfn og kíkið í Hendur í höfn ef þið eruð ekki búin að gera það nú þegar. Maturinn þar er alveg meiriháttar!
En við vorum að tala um þessa hráköku hér:
Kakan er ekki ýkja flókin og ætti ekki að taka langan tíma að búa til. Hráefnin eru líka frekar einföld svo að innkaupalistinn ætti ekki að vera mjög langur.
Nafnið á kökuna er komið af því að þessi kaka er að mínu mati drottning allra hrákaka. Þetta er líka kaka fyrir allar drottningar – hvort sem þær eiga kórónu eða ekki.
Botninn:
- 1 ½ bolli pekanhnetur
- 1 ½ bolli gráfíkjur
- 5 msk kókosolía, við stofuhita
- Smá sjávarsalt
Aðferð:
- Allt sett saman í matvinnsluvél og blandað vel saman eða þar til hráefnið loðir allt vel saman.
- Klæðið hringlaga kökumót (með lausum botni) með bökunarpappír og setjið deigið ofan í. Þjappið vel niður með höndunum og jafnið úr botninum í leiðinni.
- Setjið inn í frysti á meðan fyllingin er búin til.
Fyllingin:
- 1 ½ bolli kasjúhnetur (sem hafa verið lagðar í bleyti í minnst 6 klst)
- 1/3 bolli kókospálmasykur
- ½ bolli kókosmjólk
- ¼ bolli kókosolía, við stofuhita
- 3 msk sítrónusafi (úr ferskri sítrónu)
- 1 tsk lífrænir vanilludropar
- 2 msk hlynsíróp
- Örlítið sjávarsalt
Aðferð:
- Allt blandað saman í blandara eða þar til blandan er orðin silkimjúk og kekkjalaus.
- Hellið fyllingunni yfir botninn og setjið mótið aftur inn í frysti.
- Geymið mótið í frystinum í amk 3 klst áður en þið setjið karamelluna á.
Karamellan:
- 1 bolli kókospálmasykur
- 6 msk kókosmjólk („full fat“)
- 1 tsk lífrænir vanilludropar
- Smá sjávarsalt
Aðferð:
- Setjið kókospálmasykurinn á pönnu ásamt kókosmjólkinni og stillið á hæsta straum.
- Þegar sykurinn er byrjaður að bráðna hærið þá í með sleikju. Passið að karamellan brenni ekki við – það getur gerist mjög auðveldlega.
- Þegar karamellan er byjuð að þykkna, takið þá pönnuna af hellunni (ekki gleyma að slökkva undir!) og setjið vanilluna og sjávarsaltið saman við. Hrærið vel.
- Leyfið karamellunni að kólna örlítið en alls ekki of lengi. Hún er fljót að verða seig.
- Sækið mótið úr frystinum og dreifið karamellunni yfir kökuna. Gott að losa formið og taka bökunarpappírinn frá á meðan þið dreifið karamellunni yfir. Best er að nota skeið til að dreifa karamellunni yfir – láta hana leka yfir kökuna þvers og krus.
- Þegar þið eruð búin að setja karamelluna yfir alla yfir kökuna, setjið hana þá aftur inn í frysti og geymið í nokkrar klukkustundir – best yfir nótt.
- Kakan þarf svo að fá að þiðna aðeins á borðinu (sirka 15 mín) áður en hún er skorin.
Njótið!
ATH! #1 Ef kókospálmasykurinn er mjög grófur þá er gott að skella honum í blandarann í smá stund áður en hann er notaður. Þetta á sérstaklega við um fyllinguna.
ATH! #2 Þið megið nota meiri eða minni sætu í fyllinguna ef þið viljið – meira eða minna hlynsíróp/kókospálmasykur. Það er svo misjafnt hversu sætt fólk vill hafa hlutina.
ATH! #3 Þið getið líka notað lífrænt vanilluduft (brúna duftið) ef þið eigið ekki lífræna vanilludropa. Athugið að þið þurfið mun minna af því – hálf teskeið er meira en nóg.
ATH! #4 Ég hef sagt það áður og segi það aftur – lífrænar kasjúhnetur bragðast svo miklu betur en ólífrænar. Kasjúhneturnar frá Sólgæti eru t.d. mjög góðar.
ATH! #5 Karamellan er alveg brennandi heit til að byrja með – vinsamlegast standist freistinguna að smakka á henni! Ekki nema þið viljið hreinlega brenna ykkur.