FAGURGERÐI – MATUR // Þessi súpa er alveg ekta súpa til að fá sér á köldum rigningardegi.
Uppskriftin að súpunni er fengin frá Gróu vinkonu minni, einnig þekkt sem Gróa Kakónibba. Gróa gerði einmitt þessa súpu á síðasta Kakónibbuhittingi og sló súpan heldur betur í gegn.
Þessi súpa er bragðsterk og rífur vel í. Ef þið eruð með kvef þá eru góðar líkur á að allt hor og slen verði horfið að mestu eftir eins og einn eða tvo súpudiska.
Ég breytti uppskriftinni örlítið en í grunninn er hún sú sama og Gróa gerði.
Hráefni
- 1 msk kókosolía
- 1 lítill rauður chilli pipar
- 4 hvítlauksrif
- 1 lítill gulur laukur
- Lítill bútur af engiferi (sirka ½ „þumall“)
- 2 msk tómatpúrra
- 1 msk red curry paste
- 2 meðal stórar sætar kartöflur
- 2 stórar gulrætur
- 1 gul paprika (má líka vera rauð)
- 400 ml maukaðir tómatar
- 400 ml kókosmjólk
- 2 msk grænmetiskraftur
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk cuminduft
- 1 tsk sjávarsalt
- ½ tsk túrmerik
- Svartur pipar (slatti en ekki of mikið)
- Smá cayenne pipar (nokkrar hristur)
- 1 líter af vatni
- Safi úr 1 lime
- 1-2 msk hunang (ég mæli með Rowse)
+ ferskur kóríander og glútenlaust snakk (ég notaði Popcorners snakk með sjávarsalti, fæst m.a. Bónus)
Aðferð:
- Saxið chillipiparinn og laukinn smátt niður, pressið hvítlauksrifin og rífið niður engiferið. Setjið til hliðar.
- Setjið kókosolíuna í stóran pott og stillið á hæsta straum. Þegar hellan er orðin vel heit, setjið þá chillipiparinn, laukinn, hvítlaukinn og engiferið í pottinn. Hrærið vel í. Ef það þarf meiri vökva, bætið þá meiri vatni við.
- Setjið tómatpúrruna og curry paste-ið í pottinn og hrærið vel. Ef þarf meiri vökva, bætið þá meiri vatni við.
- Flysjið sætu kartöflurnar og saxið smá niður. Setjið í pottinn jafn óðum og þið saxið. Hrærið reglulega í pottinum og bætið við vatni ef þarf (samt ekki of miklu, bara svo rétt að það fljóti yfir grænmetið).
- Skerið gulræturnar, fyrst langsum og svo þversum (eða bara eins og þið viljið). Fræhreinsið paprikuna og saxið smátt niður. Setjið í pottinn og hrærið vel.
- Setjið maukuðu tómatana og vatnið í pottinn. Mér finnst best að fylla krukkuna af maukuðu tómötunum aftur af vatni þannig að flaskan skolist vel (og ekkert fer þá heldur til spillis af maukuðu tómötunum).
- Bætið við kryddunum og hrærið vel í pottinum.
- Lækkið hitann undir pottinum og látið súpuna malla í sirka 30 mín.
- Þegar súpan er tilbúin, takið þá pottinn af hellunni og kreistið safa úr einni lime yfir ásamt því að setja hunangið út í. Hrærið vel í pottinum. Ef ykkur finnst súpan of bragðsterk gæti verið gott að bæta aðeins meira af hunangi við. Athugið samt að þetta er mjög bragðmikil súpa sem rífur í.
- Skammtið ykkur súpuna á disk og rífið ferskan kóríander yfir ásamt því að mylja snakki yfir. Athugið að þetta tvennt er ekki nauðsynlegt en gerir mikið fyrir útlitið og framsetninguna á súpunni 🙂
Njótið!