FAGURGERÐI – MATUR // Þessi kaka er algjört sælgæti!
Vinkonur mínar stungu upp á nafninu „Alsæla“ þegar þær smökkuðu hana því að þeim fannst hún svo svakalega góð.
Þessi kaka er innblásin af Mömmukúlunum og Cheerios-dásemdinni. Botninn er svipaður Mömmukúlunum og karamellan er mjög lík karamellunni í Cheerios-dásemdinni. Saman myndar þetta tvennt svo algjöra bombu!
Botn:
- 1 bolli möndlur
- 1 bolli kókosflögur
- Smá sjávarsalt
- 1 bolli döðlur
- 3 msk hlynsíróp
- 2 msk kókosolía
- 1 tsk vanilla
Aðferð:
- Setjið möndlurnar, kókosflögurnar og sjávarsaltið í blandara og blandið þar til það er orðið að þokkalegu fíngerðu mjöli. Setjið í skál og leggið til hliðar.
- Setjið döðlurnar í skál og hellið sjóðandi heitu vatni yfir. Látið liggja í vatninu í sirka 10 mínútur. Þetta er gert til að mýkja döðlurnar enn frekar þannig að það sé auðvelt að búa til mauk úr þeim.
- Hellið vatninu af döðlunum og kreistið umfram vatn úr þeim í leiðinni. Setjið döðlurnar í blandara og maukið.
- Setjið döðlumaukið, hlynsírópið, kókosolíuna og vanilluna í skálina með hinu hráefninu. Blandið saman með skeið eða sleif, eftir því sem ykkur finnst vera betra. Deigið er mjög þykkt og klístrað og því getur verið erfitt að hræra í því.
- Setjið deigið í hringlaga eldfast mót. Dreifið vel úr með sleifinni.
- Setjið mótið inn í frysti á meðan þið búið til karamelluna.
Karamella:
- 1 krukka Biona möndlusmjör (eða annað dökkt möndlusmjör)
- ¼ bolli hlynsíróp
- 4 msk kókosolía
- Smá sjávarsalt
- ½ tsk vanilla
Aðferð:
- Bræðið allt saman í vatnsbaði. Hrærið hratt og ákveðið í blöndunni þegar möndlusmjörið er byrjað að bráðna. Möndlusmjörið er mjög þykkt og blandast ekki restinni af hráefnunum af sjálfu sér.
- Þegar karamellan er orðin silkimjúk og laus við alla kekkji, sækið þá mótið úr frystinum og hellið yfir botninn. Dreifið vel úr með sleikjunni.
- Skreytið með söxuðum möndlum og muldum kókosflögum. Setjið smá hlynsíróp yfir (þvers og kruss) en bara rétt svo að það sjáist. Ekki setja það mikið að það verði allt löðrandi í því.
- Setjið mótið aftur inn í frysti og geymið í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.
Njótið!