FAGURGERÐI – MATUR // Þetta kínóapops-súkkulaði er bæði einfalt og gott.
Hráefni:
- 1/2 bolli kakósmjör
- 2 msk möndlusmjör (ég notaði raw frá Biona)
- 1/4 bolli kókossíróp
- 1/2 bolli raw kakó
- 1 msk lucuma
- 1 tsk lífræn vanilla (duft en ekki dropar)
- Smá sjávarsalt
- 2 bollar kínóapops
Aðferð:
- Bræðið kakósmjörið í vatnsbaði.
- Á meðan kakósmjörið er að bráðna, setjið þá kakóið, lucuma, vanilluna og sjávarsaltið í skál og blandið vel saman.
- Þegar kakósmjörið hefur bráðnað alveg, setjið þá möndlusmjörið út í og hrærið vel.
- Þegar möndlusmjörið og kakósmjörið hefur blandast vel saman, hellið þá kókossírópinu út í. Blandið vel.
- Hellið blöndunni í skálina með þurrefnunum og blandið vel saman með litlum písk.
- Þegar allt hefur blandast vel saman, hellið þá kínóapopsinu út í skálina. Gott er að nota sleikju til að blanda öllu saman.
- Notið tvær teskeiðar og setjið kínóapops-súkkulaðið í lítil sílíkonform. Þið getið líka notað lítil muffins form (það er fallegra þannig) en ef þið viljið hugsa um umhverfið þá mæli ég frekar með sílikonformunum 🙂
- Setjið inn í frysti og geymið í sirka klukkustund. Þá ætti súkkulaðið að vera tilbúið.
Njótið!