FAGURGERÐI – MATUR // Þessir súkkulaði-kókosbitar eru algjört lostæti.
Þeir minna svolítið á Bounty súkkulaðið en eru auðvitað miklu hollari og jafnvel bragðbetri.
Það besta við þessa bita er að þeir eru einfaldir í framkvæmd og kalla ekki á mörg hráefni.
Uppskriftin er fengin af vefsíðunni http://chocolatecoveredkatie.com/
Hráefni:
- 1 bolli kókosmjöl
- 4 msk akasíuhunang (eða önnur sæta, t.d. hlynsíróp eða kókospálmasykur)
- ½ tsk ekta vanilla (duft en ekki dropar)
- 2 msk kókosolía
- Örlítið sjávarsalt
+ 1 plata af dökku súkkulaði (ég notaði 85%) + 1 tsk af kókosolíu
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og blandið vel saman.
- Notið fingurna til að móta litla ílanga bita og setjið á bökunarpappír (á bakka) og svo inn í frysti. Látið vera í frystinum í minnst klukkutíma.
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði ásamt kókosolíunni.
- Takið bitana úr frysti og dýfið þeim ofan í súkkulaðibráðina. Leggið bitana jafnóðum aftur á bökunarpappírinn.
- Setjið bakkann með bitunum aftur inn í frysti og geymið í nokkrar klukkustundir (2 klst er fínt – 4 klst enn betra) svo að súkkulaðið nái að harðna almennilega.
- Takið úr frystinum og njótið!