FAGURGERÐI – MATUR // Það besta við þennan ís er hvað hann er einfaldur og fljótlegur í framkvæmd.
Hráefnin eru heldur ekki mörg og stóri kosturinn við hann er að hann hefur mjög lágan sykurstuðul.
Sem sagt, ís sem er virkilega hollur og góður.
Hráefni:
- 400 ml full fat kókosmjólk
- 1/2 tsk lífræn vanilla (duft en ekki dropar)
- 2 msk kókossíróp
- Raspaður börkur af 1 lífrænni sítrónu
- 1 bolli frosin bláber
Aðferð:
- Setjið allt nema bláberin í blandara og blandið vel
- Hellið blöndunni í skál og hellið bláberjunum út í. Blandið vel saman með sleikju.
- Notið litla ausu til að skammta ísblöndunni í lítil sílikonform. Þessi uppskrift passar akkúrat í 6 stk.
- Setjið inn í frysti og geymið yfir nótt
- Þegar þið takið ísinn úr frysti þá er best að leyfa honum að þiðna í smástund áður en þið borðið hann (20 mínútur ættu að vera meira en nóg).
Njótið!
johanna@sunnlenska.is