Ætla stjórnmálin að sitja hjá?

Í aðdraganda alþingiskosninga standa Samtök ferðaþjónustunnar fyrir opnum fundum um stöðu ferðaþjónustunnar í öllum kjördæmum. Opinn fundur verður á Selfossi 17. október.

Tilefnið er að ræða stöðu ferðaþjónustunnar í hverju kjördæmi og þau tækifæri og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þeirri vaxandi atvinnugrein sem ferðaþjónustan er.

Ætla stjórnmálin að nýta þau tækifæri sem í ferðaþjónustunni felast á næsta kjörtímabili eða sitja hjá?

Í kvöld, mánudaginn 17. október kl. 20.00, verður fundur í Suðurkjördæmi á Hótel Selfossi.

Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundinn geta fylgst með honum í beinni útsendingu á www.saf.is og í kjölfarið sýndur á sjónvarpsstöðinni N4

Það er afar mikilvægt að þeir sem lifa og hrærast í ferðaþjónustunni nýti tækifærið og mætiá fundina!

Fréttatilkynning

Fyrri grein„Þetta er mikill fjársjóður“
Næsta greinLífi ökumannsins bjargað á síðustu stundu