Vegna breyttra aðstæðna hefur verið ákveðið að opna veginn milli Markarfljóts og Skóga fyrir almenna umferð.
Ítrekað er að skyggni er afar slæmt og mjög hvasst en veðrið er þó eitthvað að ganga niður.
Fólk er því beðið um að fara varlega og vera alls ekki á ferð þarna að óþörfu.