Þorvaldur Halldór Gunnarsson hefur verið ráðinn skólastjóri Vallaskóla á Selfossi til eins árs en Guðbjartur Ólason verður í námsleyfi skólaárið 2017-2018.
Þorvaldur hefur starfað sem deildarstjóri í Vallskóla undanfarin ár.
Þá hefur Einar Guðmundsson sagt starfi sínu lausu sem aðstoðarskólastjóri og Sigurborg Kjartansdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starfið í vetur.