Veitingastaðnum Þrastarlundi í Grímsnesi var lokað um helgina samkvæmt fyrirmælum sýslumannsins á Selfossi.
Staðurinn var opnaður þann 17. júní í sumar en í samtali við Vísi segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður, að staðurinn hafi ekki sótt um rekstrarleyfi.
„Ég get staðfest að staðnum hafi verið lokað. Við reynum vissulega að liðka til ef eitthvað vantar uppá hjá rekstraraðilum til að fullnægja leyfum en í þessu tiltekna tilviki hafði einfaldlega ekki verið sótt um leyfi,“ segir Ólafur Helgi.
Ólafur segir mikilvægt að bregðast við ef upp kemur að leyfisskyld starfsemi sé rekin án tilskilinna leyfa.
„Löggjafinn hefur ákveðið að tiltekin starfsemi sé leyfisskyld og að af henni beri að greiða skatta og gjöld. Ef upp kemur að slík starfsemi sé rekin án leyfa þá ber embættinu að beita þeim úrræðum sem því er í lögum veitt til koma í veg fyrir slíkt.“