Þremur styrkjum úthlutað

Á fundi menningarnefndar Ölfuss í síðustu viku var úthlutað styrkjum úr Lista- og menningarsjóði. Þrjú verkefni fengu 95 þúsund króna styrk.

Fimm umsóknir bárust nefndinni, samanlagt að upphæð 1.285.000 krónur. Til úthlutunar voru 285.000 krónur.

Ákveðið var að styrkja þrjú verkefni að upphæð 95.000 krónur hvert. Um er að ræða nýárstónleika Lúðrasveitar Þorlákshafnar, MA verkefni Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur sem ber yfirskriftina „Hefur markviss tónlistariðkun áhrif á líðan eldri borgara?“ og uppsetningu Leikfélags Ölfuss á gamanleiknum Himnaríki.

Fyrri greinVill kvennafangelsi á Sogni
Næsta greinSigurður „séní“ á Þingvöllum