Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur hefðbundinni þrettándagleði sem vera átti á Selfossi þriðjudaginn 6. janúar verið frestað um óákveðinn tíma.
Samkvæmt spá Veðurstofu Ísland er búist við vaxandi suðaustanátt seinnipartinn, 15-23 m/sek og slydda en síðar rigning annað kvöld.
Veðurspá fyrir vikuna er rysjótt og því hefur ný dagsetning á þrettándagleðinni ekki verið ákveðin. Tilkynnt verður um nýja dagsetningu með a.m.k. sólarhringsfyrirvara.