Ákveðið hefur verið að þrettándagleðin á Selfossi verði laugardaginn 9. janúar. Blysför leggur af stað frá Tryggvaskála kl. 20:00 að brennustæði á tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti.
Jólasveinarnir kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Þá verður glæsileg flugeldasýning í umsjón félagsins með stuðningi Björgunarsveitar Árborgar.
Gaman væri að sjá sem flesta bæjarbúa í trölla-, álfa eða jólasveinabúningum.
Þeim sem taka þátt í blysförinni er bent á bílastæði við Ráðhúsið, Krónuna og Hótel Selfoss. Nokkur bílastæði eru við Austurveg en á leið göngunnar að brennustæðinu er fjöldi góðra bílastæða við leikskólann Álfheima og Vallaskóla, við Sundhöll Selfoss og Fjölheima. Vegna blysfararinnar lokast Engjavegur frá Reynivöllum að Rauðholti og er fólki bent á að leggja í nálæg bílastæði. Má nefna að mikill fjöldi bílastæða er við íþróttahúsið Iðu og Fjölbrautaskóla Suðurlands auk góðra bílastæða við leikskólann Hulduheima. Þá eru og bílastæði við Selið en eins og áður segir er mælst til þess að bílum sé ekki lagt við Engjaveg á milli Reynivalla og Rauðholts.
Þar sem fjöldi ungra barna sækir þrettándagleðina er þeim tilmælum beint til fólks að vera ekki með flugelda nærri blysförinni eða við brennuna.