Þrír voru handteknir á Selfossi um sex leytið í morgun vegna gruns um fíkniefnamisferli.
Hinir handteknu eru allir á tvítugsaldri og hafa komið við sögu lögreglunnar áður, meðal annars vegna ofbeldisbrota.
Þeir eru enn í haldi og verða yfirheyrðir síðar í dag.
RÚV greindi frá þessu.