Þrjú umferðaróhöpp urðu í Kömbunum á skömmum tíma í dag samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.
mbl.is greinir frá þessu.
Óhappahrinan hófst á því að ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók utan í vegrið. Minniháttar skemmdir urðu á vegriðinu og bílnum og ökumaðurinn slapp ómeiddur.
Starfsmenn Vegagerðarinnar mættu á vettvang skömmu síðar til þess að gera við skemmdirnar á vegriðinu þegar aðvífandi ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók aftan á bíl Vegagerðarinnar. Áreksturinn var talsvert harður en engin alvarleg slys á fólki.
Þegar lögreglan ætlaði svo að athafna sig á vettvangi reyndi þriðji ökumaðurinn framúrakstur á staðnum en fipaðist og missti stjórn á ökutæki sínu. Hann lenti fyrst á vegriðinu hægra megin og síðan vinstra megin en ekki urðu slys á fólki í þessu tilfelli heldur.