Fjölga þarf kjörklefum úr 12 í 80 í Árborg þegar kosið verður til stjórnlagaþings þann 27. nóvember næstkomandi.
Þetta er nauðsynlegt þar sem ætlað er að kjósendur þurfi allt upp í tíu mínútur til að fylla út kjörseðil sinn sem verður talsvert öðruvísi að þessu sinni. Alls eru frambjóðendur til þingsins 523 og landið eitt kjördæmi. Kjósendur mega kjósa allt að 25 frambjóðendur en ekki eru nein lágmörk, og svo má vissulega skila auðum seðli.
„Við rennum auðvitað nokkuð blint í sjóinn en teljum okkur ágætlega undir þetta búin,“ segir Ingimundur Sigurmundsson formaður kjörstjórnar í Árborg. Hann segir ekki þurfa meiri mannskap til að sjá um kosningarnar, en í stað lokaðs klefa verður kjósendum gert kleift að setjast við borð með skilrúmi og fylla út seðilinn þar. „Það myndi vissulega flýta fyrir ef kjósendur koma vel undirbúnir og með númer hvers frambjóðanda með sér,“ segir Ingimundur.
Að sögn Ingimundar eru um 30 starfsmenn sem starfa í kjördeildum í Árborg, oft sama fólkið. „Það má segja að við séum orðin nokkuð slípuð í þessu,“ segir hann að lokum.