Allt tiltækt viðbragðslið hjólreiðakeppninnar Kia-Gullhringsins, sjúkraflutningamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kölluð til aðstoðar eftir hjólreiðaslys á Skálholtsvegi.
Morgunblaðið greinir frá því að fimm keppendur hafi skollið í jörðina og sé einn þeirra alvarlega slasaður. Þyrlan var kölluð út til þess að sækja hann, en hinir keppendurnir slösuðust ýmist ekki eða lítið.
Þetta staðfestir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, í samtali við mbl.is.
Keppnin hefur verið stöðvuð að sinni.