Bíll fór út af Reynishverfisvegi í Mýrdal um klukkan þrjú í dag. Tvennt slasaðist en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg.
Morgunblaðið greinir frá þessu.
Þyrla er lögð af stað til að ná í annan einstaklinginn vegna mögulegrar hættu á bakmeiðslum.
Að sögn lögreglu liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu en viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi.