Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti þrjá erlenda hjólreiðamenn í dag þar sem þeir voru strandaglópar á Fjórðungsöldu vestan við Þjórsá.
Gæslunni barst beiðni um aðstoð kl. 13:30 þar sem svæðið er mjög erfitt yfirferðar. Eftir samráð við lögregluna á Selfossi og Slysavarnarfélagið Landsbjörgu fór TF-LÍF í loftið frá Reykjavíkurflugvelli kl. 14:26.
Vitað var um staðsetningu fólksins og hélt þyrlan beint á staðinn og lenti þar kl.15:10. Ekkert amaði að fólkinu og voru þau aðstoðuð við að pakka saman búnaði. Var síðan búnaður, reiðhjól og fólk flutt yfir í þyrluna og flogið beina leið til Reykjavíkur þar sem lent var við skýli Landhelgisgæslunnar kl. 16:02.