Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að kona fékk heilablóðfall á Kirkjubæjarklaustri í gærkvöldi.
Hún var flutt í sjúkrabíl til móts við þyrluna, sem lenti á þjóðveginum og tók hana upp í.
Þá var konan heldur farin að hressast og var hún flutt á Landspítalann.