Þyrlu Norðurflugs hlekktist á á Eyjafjallajökli fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli fór betur en á horfðist og engin slys urðu á fólki.
Þyrlan var við kvikmyndatökur á jöklinum en í tilkynningu frá Norðurflugi segir að rannsókn á tildrögum óhappsins sé núna í höndum Rannsóknarnefndar samgönguslysa og annarra yfirvalda.