Í dag eru 662 manns í einangrun vegna COVID-19 í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og hefur fjölgað um 44 síðan á miðvikudaginn.
Í Árborg eru 191 manns í einangrun og 230 manns í sóttkví, þar af 151 á Selfossi og þar eru 210 í sóttkví.
Í Hveragerði eru 79 í einangrun og 138 í sóttkví og í Grímsnesinu eru 72 í einangrun og 46 í sóttkví.
Þetta kemur fram í tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Samtals eru 839 manns í sóttkví í umdæminu öllu.