1000 andlit MS – með spelku á fæti

Alþjóðlegur MS-dagur er haldinn í fjórða sinn í dag og er yfirskrift dagsins 1000 andlit MS. Megintilgangur alþjóðadagsins er að fræða og upplýsa um sjúkdóminn.

Spasmi orsakast af stífum vöðvum og getur valdið miklum krömpum. Vöðvarnir stífna vegna þess að taugar sem eiga að samhæfa vöðva og hreyfigetu vinna ekki rétt. Þá vilja vöðvarnir oft stífna upp. Spasmi eða stífleiki í vöðvum hrjáir marga sem haldnir eru MS sjúkdómnum Líkja má einkennunum við að vera með stífa spelku á fæti. Vöðvarnir hreyfast ekki eðlilega. Stundum getur spelkan verið mjög stíf og óþægileg. Spasmar gera oft vart við sig þegar lagst er til hvílu á kvöldin og truflað svefn. Spasmi er eitt af 1000 andlitum MS sjúkdómsins.

MS er sjúkdómur í miðtaugakerfi (heila og mænu). Sjúkdómurinn einkennist af köstum með bata á milli. Kast er oftast tímabundin versnun á einkennum eða ný einkenni láta á sér kræla. Þreyta er það einkenni sem flestir finna alltaf fyrir. Einkenni þeirra sem eru með MS (MULTIPLE SCLEROSIS) fara eftir því hvaða taugar verða fyrir skaða, hvaða hluta heilans eða mænunnar sjúkdómurinn ræðast á hverju sinni. MS-sjúkdómurinn er oft kallaður sjúkdómurinn með 1000 andlit vegna þess að einkennin eru svo mismunandi eftir því hvað taugar verða fyrir skaða. Dofi er annað algengt einkenni sem og sjóntruflanir, kraftleysi, jafnvægistruflanir og verkir.

Enn hefur ekki fundist lækning við MS og orsök sjúkdómsins er ekki þekkt þó nokkrar kenningar séu á lofti. MS er ekki arfgengur sjúkdómur og er ekki banvænn. Engin lyf lækna MS, en á undanförnum 15-20 árum hafa komið fram svo kölluð bremsulyf sem hægja á framgangi sjúkdómsins með því að stöðva köst.

Á Íslandi eru um 430 einstaklingar með MS og flestir greinast fyrir 35 ára aldur. MS-félag Íslands er hagsmunafélag MS-sjúklinga og aðstandenda þeirra. Félagið stendur fyrir öflugu kynningarstarfi, heldur námskeið fyrir félagsmenn og aðstandendur, stendur fyrir fræðslufyrirlestrum og útgáfu blaða og bæklinga. MS-félagið reiðir sig á stuðning almennings, fyrirtækja og líknarfélaga til að geta haldið úti starfsemi sinni.

MS-félagið leitar nú eftir stuðningi Íslendinga við sitt góða og þarfa starf. Með því að hringja í eitt af eftirtöldum númerum styrkir þú félagið um ákveðna fjárhæð:

901 5010 – 1000 kr. styrkur

901 5030 – 3000 kr. styrkur

901 5050 – 5000 kr. styrkur

Símanúmerin verða opin næstu daga og nú er um að gera að leggja sín lóð á vogarskálarnar.

Fyrri greinThelma tryggði Selfyssingum fyrsta sigurinn í efstu deild
Næsta greinEkki bara blóm í Hveragerði