Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands hefur auglýst eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2020. Úthlutað verður kr. 1.600.000 í styrki þetta árið.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnuog/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.fraedslunet.is og www.hfsu.is.