Í dag eru hátt í 40% starfsmenn Grunnskólans í Hveragerði fjarverandi og á annað hundrað nemendur. Til þess að reyna að hemja útbreiðslu smita í samfélaginu hefur verið ákveðið að loka grunnskólanum, Leikskólanum Óskalandi og dagvistuninni Bungubrekku næsta mánudag.
Á þriðjudaginn er starfsdagur og á miðvikudag foreldraviðtöl í grunnskólanum. Með þessari ákvörðun vonast bæjaryfirvöld til þess að andrými gefist til að staðan verði metin og einnig mögulega að smitum muni fækka í kjölfarið.
Í dag eru 138 Hvergerðingar skráðir í sóttkví og 79 í einangrun og hefur þessi mikli fjöldi smita áhrif á fjölmargar fjölskyldur og flestar stofnanir og fyrirtæki bæjarins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra.
Frístundaskólinn er lokaður þar sem nær allir starfsmenn þar eru í sóttkví og Leikskólinn Óskaland er lokaður vegna smita sem þar hafa komið upp og þeim fjölda sem þar er.
Ákveðið hefur verið að biðla til foreldra barna á leikskólum bæjarins sem tök hafa á að þeir hafi börn sín heima næstu daga eða á meðan ástandið varir. Foreldrar munu fá leikskólagjöld sem og gjöld vegna mötuneyta felld niður láti þeir leikskólann vita um fjarveru barna sinna með fyrirvara.