Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss var samþykkt á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu sem nemur rúmum 136,8 milljónum króna.
Ráðgert er að rekstrartekjur verði rúmlega 2,6 milljarðarðar króna og rekstrargjöld rétt rúmlega 2,4 milljarðar króna. Veltufé frá rekstri verður tæplega 412,8 milljónir króna og fyrirhugað er að greiða langtímalán niður fyrir rúmar 128 milljónir króna.
Í fréttatilkynningu sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri, sendi út eftir fundinn segir að áætlunin beri í alla staði með sér að Ölfus sé í sókn enda hefur íbúum á árinu fjölgað verulega. Höfuðáhersla er því lögð á að mæta vaxandi eftirspurn eftir lóðum bæði undir íbúðarhúsnæði sem og atvinnuhúnæði. Til marks um það eru mest útgjöld áætluð til gatnagerðar, fráveitu og annarra slíkra uppbyggingaþátta. Áfram verður haldið að selja lóðir á kostnaðarverði.
Leikskólagjöld lækka
Í tilkynningunni segir að samhliða þessum mikilvægu þáttum sé allra leiða leitað til að létta álögur á bæjarbúa og styðja við bakið á þeim. Þar ber hæst að fasteignaskattur er lækkaður úr 0,38% í 0,35% auk þess sem leikskólagjöld eru lækkuð og frístundastyrkur hækkaður um 100%.
Áfram verður haldið að bæta innviði. Stærsta einstaka framkvæmdin er bygging sérhæfðrar aðstöðu til iðkunar fimleika sem ráðgert er að haldið verði áfram með á fyrrihluta næsta árs.
Málefni eldri borgara eru brýn á næstu árum og verða þarfir þess hóps kortlagðar og til að styðja við slíka stefnumótun er stefnt að því að ráða sérstakan deildarstjóra í málefnum aldraðra auk þess sem verja á fjármagni til hönnunar og áframhaldandi undirbúningi framkvæmda.
Einnig á að ljúka hönnun á stækkun og endurbótum á höfninni auk þess verður áfram unnið að því að koma upp nýsköpunar og jarðhitagarði við Hellisheiðavirkjun í samstarfi við Orku náttúrunnar. Samhliða verður lögð áhersla á að skipuleggja lóðir fyrir atvinnurekstur og undirbúa framkvæmdir vegna þeirra.