Samkvæmt nýsamþykktri samgönguáætlun Alþingis er gert ráð fyrir 4,5 milljörðum króna á næstu árum í nýja Ölfusárbrú og færslu Suðurlandsvegar norður fyrir Selfoss.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.
Á þessu ári og 2017-2018 fara 150 milljónir króna í undirbúning framkvæmda en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ekki búist við að framkvæmdir hefjist fyrr en eftir 2020.
Fyrst er ætlunin að ljúka breikkun Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. Í þá framkvæmd var samþykkt að setja fimm milljarða króna á samgönguáætlun. Reiknað er með að 100 milljónir króna fari í undirbúning breikkunar á þessu ári, 500 milljónir króna á næsta ári og 1,2 milljarðar árið 2018, þegar eiginlegar framkvæmdir hefjast fyrir alvöru.