Í dag eru 49 einstaklingar í einangrun vegna COVID-19 í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Þetta er töluverð fækkun frá því á fimmtudaginn í síðustu viku þegar 84 voru í einangrun.
Flestir eru í einangrun í Árborg, fjórtán talsins, þar af ellefu á Selfossi. Þetta kemur fram í tölum frá HSU.
Nú eru 95 í sóttkví á Suðurlandi eftir að hafa verið útsettir fyrir smiti, átján eru í sóttkví í Árborg og tólf í Hveragerði.